Ráðgjöf
Vantar þig aðila til að aðstoða þig með markaðsmál, framleiðslu og birtingar? Við sjáum til þess að þú fáir góða þjónustu og fylgjum okkar verkefnum fast eftir.
Framkvæmd
Áður en að lagt er af stað með auglýsingaherferð er gott að undirbúa þær upplýsingar sem á að koma á framfæri og skilgreina markmið herferðar. Erum við að auka vöruvitund, byggja upp ímynd, auka sölu eða annað? Hver er markhópurinn, hverjar eru neysluvenjur markhópsins og hvernig viljum við aðskilja okkur frá samkeppninni?
Góður undirbúningur getur skipt miklu máli þegar það kemur að hugmyndavinnu og textagerð auglýsinga, samspil hvaða miðla hentar best markhópnum og hvaða birtingartækifæri eru ákjósanlegasti kosturinn.
Þegar auglýsingaherferð er komin af stað mælum við árangur og fylgjum henni eftir.
Framleiðsla
Hægt er að panta framleiðslu á útvarpsauglýsingum hjá okkur. Við eigum góðan hóp af mjög góðum lesurum.
Við erum með góða tengiliði sem aðstoða okkur við framleiðslu á sjónvarpsauglýsingum og netborðum. Hafðu samband við viðskiptastjóra til að fá frekari upplýsingar.