Kynning á iPad
Þessi handbók inniheldur tæknilegar leiðbeiningar um viðgerðir og úrræðaleit fyrir iPad og er ætluð tæknimönnum með þá þekkingu, reynslu og verkfæri sem þarf til að gera við rafeindatæki.
Mikilvægt
Lestu alla handbókina áður en lengra er haldið. Þau sem ekki treysta sér til að framkvæma þessi þrep, samkvæmt leiðbeiningunum í þessari handbók, ættu ekki að halda áfram.
Notið alltaf nýjustu útgáfuna af þessari handbók sem finna má á support.apple.com/en_US/manuals/macdesktops.
Viðvörun
Ef viðgerðarleiðbeiningunum er ekki fylgt eða upprunalegir Apple-varahlutir eða rétt verkfæri eru ekki notuð getur það valdið bruna eða öðrum öryggisvandamálum og leitt til meiðsla á fólki eða dauða.
Varúð
Ef viðgerðarleiðbeiningunum er ekki fylgt eða upprunalegir Apple-varahlutir eða rétt verkfæri ekki notuð getur það valdið skemmdum á iPhone-símanum, íhlutum eða öðrum eignum, eða skaðað virkni tækisins.
Upplýsingar um ábyrgð
Skemmdir sem hljótast af viðgerðum sem ekki eru framkvæmdar af Apple eða viðurkenndum þjónustuaðila Apple heyra ekki undir ábyrgð Apple eða AppleCare-tryggingar. Slíkar skemmdir geta valdið því að það þurfi að greiða fyrir viðgerðir og þær séu utan ábyrgðar eða orðið til þess að ekki verði hægt að gera við tækið hjá Apple eða viðurkenndum þjónustuaðilum Apple.
Verkfæri og varahlutir
Þegar gera þarf við iPad er hægt að velja milli upprunalegra Apple-varahluta, notaðra Apple-varahluta eða varahluta frá þriðja aðila. Frekari upplýsingar um varahlutastuðning fyrir iPad.
Hugbúnaðarverkfæri
Viðgerðaraðstoðin er hugbúnaðarverkfæri sem lýkur við viðgerðina fyrir tiltekna nýja og notaða upprunalega Apple-varahluti. Hugsanlega verður mælt með viðgerðaraðstoð þegar viðgerðinni lýkur, en það fer eftir íhlutnum sem skipt er um hverju sinni.
Hvað felst í viðgerðaraðstoð? | Hvers vegna þetta er mikilvægt |
---|---|
Flytur verksmiðjustillt kvörðunargildi | Ákveðnir varahlutir á borð við skjái, myndavélar og skynjara fyrir umhverfislýsingu hafa sín kvörðunargildi sem eru sérsniðin fyrir hvern einstakan varahlut við framleiðslu. Með því að sækja þessi gildi eru hámarksafköst og gæði tryggð eftir viðgerð. |
Tengir Secure Enclave við lífkennisannvottunarhluti | Eftir viðgerðir á móðurborði eða hlutum lífkennisannvottunar (Touch ID eða Face ID ) þarf að tengja lífkenniskynjara við Secure Enclave á móðurborðinu til að tryggja öryggi tækisins. |
Athuganir á virkjunarlás | Tilteknir íhlutir eru varðir með virkjunarlás. Viðgerðaraðstoð gengur úr skugga um að ekki sé kveikt á virkjunarlás fyrir íhlutinn sem verið er að setja í. |
Úthlutar þráðlausu svæði | Til að uppfylla reglur um samskipti verður að úthluta móðurborðinu þráðlausu svæði. |
Uppfærir fastbúnað | Ef fastbúnaður er uppfærður hefur tækið alla nýjustu öryggisvirkni og afköst. |
Hvernig hefja á viðgerðaraðstoð
Tryggið að eftirfarandi lágmarkskröfur séu uppfylltar:
Nýjasta útgáfan af iPadOS – ekki beta-útgáfa – á iPad
Öflug Wi-Fi-tenging með 1,0 Mbps niðurhals- og upphleðsluhraða, með minna en 400 ms biðtíma og minna en 2% pakkatapi. Áætluð gagnanotkun við að keyra kerfisstillingu er 6–22 MB.
Ef viðgerðin er framkvæmd á tæki frá einhverjum öðrum skal setja tækið í greiningarstillingu og fylgja síðan leiðbeiningunum á skjánum.
Ef viðgerðin er framkvæmd á eigin tæki er hægt að kynna sér viðgerðaraðstoðina.
Viðvaranir
Ef viðvörunum er ekki sinnt getur það leitt af sér eldsvoða, meiðsl á fólki, gagnatap eða skemmdir á tækinu, varahlutum eða öðrum eignum.
Viðvörun | Leiðbeiningar til að draga úr hættu á líkamstjóni | |
Varúð | Leiðbeiningar til að draga úr hættu á gagnatapi eða vélbúnaðarskemmdum | |
Mikilvægt | Viðbótarupplýsingar til að framkvæma aðgerðir á árangursríkan hátt; hvorki viðvörun né varnaðarorð. |