iPad: Úrræðaleit vegna vandamála með myndavél

Úrræðaleit vegna vandamála með myndavél eða LiDAR

Úrræðaleit vegna vandamála með TrueDepth-myndavél eða Face ID

Úrræðaleit vegna vandamála með myndavél eða LiDAR

Greining vandamála

Lesið þessa grein ef einhver af eftirfarandi vandamálum eru til staðar:

  • Vandamál með gæði mynda eða myndskeiða

    • Óskýrt eða óljóst

    • Of dimmt eða of bjart

    • Litaðar línur eða strik

    • Blettir

    • Röng litajöfnun

    • Óeðlileg lýsing, móða eða blettur nálægt brúninni

    • Rispur í skærum lit

  • Vandamál með myndavél

    • Ekki er hægt að taka myndir

    • Ekki er hægt að taka upp myndskeið

    • Forskoðun sést ekki í myndavélarforritinu

    • Myndavélarforritið lokast óvænt

    • LED-ljós virkar ekki

    • Myndavélarforrit skiptir ekki á milli myndavélar og TrueDepth-myndavélar

    • Myndavél á í vandræðum með að skipta yfir á aðdráttarmyndavél fyrir meiri aðdrátt en 2x í björtu umhverfi

    • Ryk eða aðrir aðskotahlutir í linsu myndavélar

  • Vandamál með LiDAR

Ef myndavélin eða flassið á iPhone, iPad eða iPod touch virkar ekki

Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein skal halda áfram í næsta hluta.

Prófaðu fljótleg úrræðaleitarskref

  1. Mismunandi iPad-gerðir eru með mismunandi myndavélar og eiginleika, eins og LiDAR. Hægt er að fá aðstoð við að ákvarða gerð iPad í Að ákvarða gerð iPad-tækisins.

  2. Notið mælingaforritið til að athuga LiDAR á samhæfum gerðum.

  3. Hreinsið allar myndavélalinsur með mjúkum, örlítið rökum og lófríum klút – til dæmis klút fyrir linsur.

    • Mikilvægt: Takið fyrst alla kapla úr sambandi og slökkvið á iPad. Ekki nota vörur sem innihalda bleikiefni eða vetnisperoxíð. Forðist að raki komist í op og ekki skal setja iPad á kaf í vökva sem inniheldur hreinsiefni. Notið ekki þrýstiloft.

  4. Fjarlægið hulstur, aukabúnað eða filmu sem gæti verið fyrir myndavélinni eða flassinu eða nálæga hluti sem innihalda segul. Fjarlægið allan aukabúnað fyrir prófun.

  5. Skoðið iPad með tilliti til skemmda í kringum myndavélina. Allar skemmdir á myndavélinni, t.d. við að missa iPad í gólfið, gætu þarfnast viðgerðar.

  6. Frekari upplýsingar eru í skrefum og hjálparúrræðum í Fljótleg úrræðaleit.

Keyrið handvirk- og greiningarpróf

Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein eða athuga hugsanlegar orsakir skaltu keyra þessar greiningar- og handvirku prófanir til að hjálpa til við að einangra orsök vandans:

  1. Takið mynd frá lásskjánum með myndavélarforritinu til að prófa gæði myndavélarinnar.

  2. Keyrið Greiningarpakka skoðunarbúnaðar fyrir farsímatilföng (MRI).

  3. Keyrið Greiningarpakka fyrir myndgæði myndavélar. Fylgið leiðbeiningunum fyrir hugbúnaðarpakkann varðandi skrásetningu frávika eða bjögunar sem kemur fram þegar prófið er framkvæmt.

Skiptið um íhlutinn

Látið gera við iPad-tækið ef vandamálið leysist ekki eða ekki tekst að einangra orsökina með því að fylgja fyrri skrefum. Þjónustuvalkosti er að finna á support.apple.com/repair.

Athugið: Í þessum hluta þarf að nota varahluti og verkfæri. Ekki er víst að vandamál tækisins leysist þótt skipt sé um íhlut. Finna má aðra þjónustuvalkosti á support.apple.com/repair.

Úrræðaleit vegna vandamála með TrueDepth-myndavél eða Face ID

Greining vandamála

Lesið þessar greinar ef einhver af eftirfarandi vandamálum eru til staðar:

  • Vandamál með gæði mynda eða myndskeiða

    • Óskýrt eða óljóst

    • Of dimmt eða of bjart

    • Litaðar línur eða strik

    • Blettir

    • Röng litajöfnun

    • Óeðlileg lýsing, móða eða blettur nálægt brúninni

    • Rispur í skærum lit

  • Vandamál með myndavél

    • Ekki er hægt að taka myndir

    • Ekki er hægt að taka upp myndskeið

    • Forskoðun sést ekki í myndavélarforritinu

    • Myndavélarforritið lokast óvænt

    • Myndavélarforrit skiptir ekki á milli myndavélar og TrueDepth-myndavélar

    • Ryk eða aðrir aðskotahlutir í linsu myndavélar

Ef myndavélin eða flassið á iPhone, iPad eða iPod touch virkar ekki

  • Vandamál með Face ID

    • Ekki er hægt að setja upp Face ID

    • Ekki er hægt að greina andlit einstaklings

    • Ekki er hægt að opna iPad með Face ID

    • Ekki er hægt að kaupa með Face ID

    • Tilkynningin „Face ID hefur verið gert óvirkt“ kemur upp

Notkun Face ID í iPhone eða iPad Pro

Ef tilkynning segir að Face ID hafi verið gert óvirkt í iPhone eða iPad Pro

Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein skal halda áfram í næsta hluta.

Prófaðu fljótleg úrræðaleitarskref

  1. Mismunandi iPad-gerðir eru með mismunandi myndavélar og eiginleika, eins og Face ID. Hægt er að fá aðstoð við að ákvarða gerð iPad í Að ákvarða gerð iPad-tækisins.

  2. Hreinsið allar myndavélalinsur með mjúkum, örlítið rökum og lófríum klút – til dæmis klút fyrir linsur.

    • Mikilvægt: Takið fyrst alla kapla úr sambandi og slökkvið á iPad. Ekki nota vörur sem innihalda bleikiefni eða vetnisperoxíð. Forðist að raki komist í op og ekki skal setja iPad á kaf í vökva sem inniheldur hreinsiefni. Notið ekki þrýstiloft.

  3. Fjarlægið hulstur, aukabúnað eða filmu sem gæti verið fyrir myndavélinni eða flassinu eða nálæga hluti sem innihalda segul. Fjarlægið allan aukabúnað fyrir prófun.

  4. Skoðið iPad með tilliti til skemmda í kringum myndavélina. Allar skemmdir á myndavélinni, t.d. við að missa iPad í gólfið, gætu þarfnast viðgerðar.

  5. Gangið úr skugga um að augu, nef og munnur sjáist almennilega í TrueDepth-myndavélinni. Ef notuð eru sólgleraugu sem hindra ákveðna ljósgeisla skal prófa að nota Face ID án sólgleraugna.

  6. Haldið iPad 20–50 cm frá andlitinu.

  7. Frekari upplýsingar eru í skrefum og hjálparúrræðum í Fljótleg úrræðaleit.

Keyrið handvirk- og greiningarpróf

Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein eða athuga hugsanlegar orsakir skaltu keyra þessar greiningar- og handvirku prófanir til að hjálpa til við að einangra orsök vandans:

  1. Takið mynd frá lásskjánum með myndavélarforritinu til að prófa gæði myndavélarinnar.

  2. Keyrið Greiningarpakka skoðunarbúnaðar fyrir farsímatilföng (MRI).

  3. Keyrið Greiningarpakka fyrir myndgæði myndavélar. Fylgið leiðbeiningunum fyrir hugbúnaðarpakkann varðandi skrásetningu frávika eða bjögunar sem kemur fram þegar prófið er framkvæmt.

  4. Keyrið Greiningarpakka Face ID.

Birt: