Val di Chiana
Útlit
Val di Chiana er um 100 km langt hallandi dalverpi í Toskana á Ítalíu sem nær frá rótum Appennínafjalla í norðri að sléttunni kringum Orvieto í suðri. Dalurinn dregur nafn sitt af ánni Chiana sem nú rennur í Chiana-skurðinum í dalnum miðjum. Chiana var þverá Tíber en á tímum Ágústusar var hún stífluð þar sem rómverskir verkfræðingar töldu hana skapa flóðahættu. Við þetta hægði á rennsli hennar og dalbotninn breyttist smám saman í mýri og byggðin fluttist yfir á hæðirnar í kring. Í byrjun 19. aldar var skurðurinn gerður eftir nánast öllum hinum gamla árfarvegi og látinn renna í Arnó.
Sveitarfélög
[breyta | breyta frumkóða]Dalurinn skiptist milli sýslnanna Arezzo og Siena og eftirfarandi sveitarfélaga:
- Arezzo-megin: Arezzo, Castiglion Fiorentino, Civitella in Val di Chiana, Cortona, Foiano della Chiana, Lucignano, Marciano della Chiana, Monte San Savino
- Siena-megin: Cetona, Chianciano Terme, Chiusi, Montepulciano, San Casciano dei Bagni, Sarteano, Sinalunga, Torrita di Siena, Trequanda.