Sameiningarflokkur alþýðu - Sósíalistaflokkurinn
Sameiningarflokkur alþýðu - Sósíalistaflokkurinn, oftast nefndur einfaldlega Sósíalistaflokkurinn, var íslenskur stjórnmálaflokkur sem starfaði frá 1938 til 1968 þegar Alþýðubandalagið var gert að formlegum stjórnmálaflokki. Hann var myndaður af Kommúnistaflokki Íslands og hluta úr Alþýðuflokknum á grundvelli hugmyndarinnar um breiðfylkingu alþýðu gegn fasisma sem síðasta þing Komintern árið 1935 hafði sett fram og sem Einar Olgeirsson barðist fyrir á Íslandi.
1956 tók Sósíalistaflokkurinn þátt í stofnun kosningabandalagsins Alþýðubandalagsins ásamt Málfundafélagi jafnaðarmanna og Hannibal Valdimarssyni. Þegar Alþýðubandalagið varð að stjórnmálaflokki árið 1968 gekk Sósíalistaflokkurinn sjálfkrafa inn í það. Með því var flokkurinn lagður niður.
Sósíalistafélag Reykjavíkur neitaði að ganga í Alþýðubandalagið og hélt áfram sjálfstæðu starfi í nokkur ár áður en það hætti starfsemi. Kvenfélag Sósíalista var einnig starfrækt áfram þar til það var formlega lagt niður árið 1992.
Formenn
[breyta | breyta frumkóða]- Héðinn Valdimarsson, 1938-1939
- Einar Olgeirsson, 1939-1968
Varaformenn
[breyta | breyta frumkóða]- Sigfús Sigurhjartarson, 1938-1952
- Steinþór Guðmundsson, 1952-1957
- Lúðvík Jósepsson, 1957-1968
Kjörfylgi
[breyta | breyta frumkóða]Alþingiskosningar | ||
---|---|---|
Kosningar | % atkvæða | þingsæti |
1942 (júlí) | 16,2 | 6 |
1942 (október) | 18,5 | 10 |
1946 | 19,5 | 10 |
1949 | 19,5 | 9 |
1953 | 16,1 | 7 |
Borgarstjórnarkosningar | ||
---|---|---|
Kosningar | % atkvæða | fulltrúar |
1942 | 23,8 | 4 (15) |
1946 | 28,5 | 4 (15) |
1950 | 26,5 | 4 (15) |
1954 | 19,3 | 3 (15) |