Salman Rushdie
Salman Rushdie (fæddur: Ahmed Salman Rushdie, أحمد سلمان رشدی á arabísku (þann 19. júní 1947 í Bombay) er bresk-bandarískur rithöfundur af indverskum uppruna. Rushdie blandar gjarnan töfraraunsæi við sagnfræðilegar staðreyndir og gerast flestar skáldsögur hans á Indlandi og í Pakistan.
Salman ólst upp í miðstéttarfjölskyldu í Bombay á Indlandi. Á unglingsaldri fluttist hann ásamt fjölskyldu sinni til Pakistan og seinna til Bretlands. Margar af bókum hans hafa verið þýddar og gefnar út á íslensku.
Vegna meints guðlasts í bókinni Söngvum Satans eftir Salman hefur klerkastjórn Írans lýst Salman réttdræpan meðal múslima.[1][2]
Árið 2022 var ráðist á Rushdie og hann stunginn í hálsinn og á fleiri staði þegar hann var að flytja fyrirlestur í New York.[3] Rushdie lifði árásina af en missti sjón á öðru auga og allan mátt í annarri hendi vegna áverka eftir hnífsstungurnar.[4]
Rushdie hlaut bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness árið 2024.
Verk
[breyta | breyta frumkóða]- Grimus (1975)
- Midnight's Children (Miðnæturbörn, 1981 (kom út í íslenskri þýðingu Árna Óskarssonar 2003))
- Shame (1983)
- The Jaguar Smile: A Nicaraguan Journey (1987)
- The Satanic Verses (Söngvar satans, 1988)
- Haroun and the Sea of Stories (Harún og sagnahafið, 1990)
- Imaginary Homelands: Essays and Criticism, 1981–1991 (1992)
- East, West (1994)
- The Moor's Last Sigh (Síðasta andvarp Márans, 1995)
- The Ground Beneath Her Feet (Jörðin undir fótum hennar, 1999 (kom út í íslenskri þýðingu Árna Óskarssonar 2001))
- Fury (2001)
- Step Across This Line: Collected Nonfiction 1992–2002 (2002)
- The East is Blue (ritgerð, 2004)
- Shalimar the Clown (2005)
- Two Years Eight Months and Twenty-Eight Nights (2015)
- The Golden House (2017)
- Quichotte (2019)
- Victory (2023)
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Salman Rushdie kominn í stríð við Facebook Vísir. Sótt 15.11.2011
- ↑ Guðrún Margrét Guðmundsdóttir (8. nóvember 2006). „Af hverju var rithöfundurinn Salman Rushdie dæmdur til dauða?“. Vísindavefurinn. Sótt 21. apríl 2024.
- ↑ Ólöf Rún Erlendsdóttir (12. ágúst 2022). „Salman Rushdie stunginn á sviði í New York“. RÚV. Sótt 12. ágúst 2022.
- ↑ Viktor Örn Ásgeirsson (23. október 2022). „Blindur á öðru auga og máttlaus í hendi eftir árásina“. Vísir. Sótt 21. apríl 2024.