Sólstafir (hljómsveit)
Sólstafir er íslensk þungarokks- eða post-metal-sveit sem stofnuð var árið 1995.
Söguágrip
[breyta | breyta frumkóða]Sólstafir var stofnuð af þremur vinum, þeim Aðalbirni Tryggvasyni, Halldóri Einarssyni og Guðmundi Óla Pálmasyni í Janúar árið 1995. Seinna sama ár hljóðritaði hljómsveitin fyrstu hljóðsnældu sína "Í norðri" og við enda ársins tók hún upp seinni hljóðsnældu sína "Til Valhallar". Sólstafir voru þá undir miklum svartmálmsáhrifum Þegar leið á tíunda áratuginn jukust vinsældir sveitarinnar í Evrópu og hljómsveitin fór í hljómleikaferðalag um álfuna. Þegar þarna var komið hafði hljómsveitin breytt tónlistarstefnu sinni, látið af þyngri stíl og farið í meiri tilraunamennsku. Lagið Fjara náði talsverðum vinsældum.
Árið 2015 var Guðmundi Óla Pálmarssyni, trommara, vikið úr sveitinni. Guðmundur birti yfirlýsingu vegna þessa á netinu [1]
Útgefin verk
[breyta | breyta frumkóða]- Í Norðri (1995)
- Til Valhallar (1996)
- Promo Tape September 1997 (1997)
- Unofficial promo 1998 (1998)
- Í Blóði Og Anda (2002)
- Black Death (2002)
- Til Valhallar (rússnesk endurútgáfa) (2003)
- Promo 2004 (2004)
- Masterpiece of Bitterness (2005) (Spinefarm Records)
- Köld (2009) (Spikefarm Records)
- Svartir Sandar (2011) (Season of Mist)
- Ótta (2014) (Season of Mist)
- Berdreyminn (2017) (Season of Mist)
- Endless Twilight of the Codependent Love (2020)
- Hin helga kvöl (2024)
Meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- Aðalbjörn Tryggvason: (Gítar og söngur)
- Sæþór Maríus Sæþórsson: (Gítar)
- Svavar Austmann: (Bassi)
- Hallgrímur Jón Hallgrímsson : (Trommur)
Fyrrum meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- Guðmundur Óli Pálmason (Trommur (1995-2015)
- Halldór Einarsson – bassi (1995–1997)