Real Sociedad
Real Sociedad de Fútbol | |||
Fullt nafn | Real Sociedad de Fútbol | ||
Gælunafn/nöfn | Txuri-urdinak (Þeir hvítu og bláu) | ||
---|---|---|---|
Stofnað | 7. september 1909 | ||
Leikvöllur | Anoeta Stadium | ||
Stærð | 39.500 áhorfendur | ||
Knattspyrnustjóri | MImanol Alguacil | ||
Deild | La Liga | ||
2023-2024 | 6. Sæti | ||
|
Real Sociedad de Fútbol, oftast þekkt sem Real Sociedad, er spænskt knattspyrnufélag með aðsetur í San Sebastian í Baskalandi Spánar. Félagið var stofnað árið 1909, það spilar í La Liga. Þeir spila heimaleiki sína á Anoeta Stadium.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Knattspyrnuíþróttin barst til San Sebastian í upphafi tuttugustu aldar með námsmönnum og verkamönnum sem starfað höfðu í Bretlandi. Árið 1904 stofnaði þessi hópur félagið San Sebastian Recreation Club sem tók þátt í Copa del Rey árið eftir. Næstu misserin keppti félagið undir ýmsum nöfnum í opninberum knattspyrnumótum, sem snerist oft um skriffinnsku. Þannig varð félagið bikarmeistari árið 1909 undir heitinu Club Ciclista de San Sebastián eftir sigur á Club Español de Madrid í úrslitaleiknum. Telst það fyrsti titill Real Sociedad. Árið eftir hafnaði félagið í öðru sæti, þá sem Vasconia de San Sebastián. Síðar á árinu 1910 komst regla á nafnamálin þegar Alfons 13. Spánarkonungur, sem varði sumarleyfum sínum í San Sebastian gaf félaginu leyfi til að taka upp konungstitilinn í nafni sínu og Real Sociedad de Fútbo varð til.
Real Sociedad var í hópi stofnfélaga spænsku deildarkeppninnar árið 1929. Í tíð spænska lýðveldisins var konungsveldið afnumið og nafni félagsins var þá um skeið breytt í Donostia Club de Futbol en að spænsku borgarastyrjöldinni lokinni var fyrra heiti tekið upp á ný. Drjúgan hluta tuttugustu aldarinnar flakkaði Real Sociedad milli tveggja efstu deildanna og tókst meira að segja að fara sjö sinnum upp eða niður um deild á fimmta áratugnum.
Sigursæld á níunda áratugnum
[breyta | breyta frumkóða]Leiktíðina 1979-80 hafnaði Real Sociedad í öðru sæti í La Liga, einungis stigu á eftir meisturum Real Madrid. Enn betri varð árangurinn árið eftir þar sem Real Madrid og Sociedad enduðu jöfn að stigum, en síðarnefnda liðið varð meistari vegna úrslita í innbyrðisviðureignum. Alberto Ormaetxea, fyrrum leikmaður félagsins, stýrði því þar með til síns fyrsta Spánarmeistaratitils.
Frumraun Real Sociedad í Evrópukeppni meistaraliða olli vonbrigðum, þar sem liðið féll úr leik fyrir búlgörsku meisturunum í CSKA Sofia strax í fyrstu umferð.
Barcelona veitti Real Sociedad mesta samkeppni leiktíðina 1981-82, þar sem baskneska félaginu tókst að verja titil sinn. Var það síðasti Spánarmeistaratitill liðsins til þessa dags. Árið eftir komst Real Sociedad alla leið í undanúrslit Evrópukeppninnar, en tapaði þar fyrir meistaraefnunum í Hamburger SV eftir að hafa m.a. slegið Víkinga úr keppni.
Walesverjinn John Toshack tók við stjórn Real Sociedad og gegndi starfinu með hléum til 1994. Hann gerði liðið að bikarmeisturum leiktíðina 1986-87 eftir sigur á Atlético Madrid í vítaspyrnukeppni. Árið eftir hafnaði félagið í öðru sæti deildarinnar, allnokkuð á eftir meisturum Real Madrid.
Um árabil hélt Real Sociedad í heiðri sömu vinnureglu og grannar þeirra í Athletic Bilbao að tefla einungis fram baskneskum leikmönnum. Frá því var horfið árið 1989 þegar Írinn John Aldridge gekk til liðs við félagið. Árið eftir varð Englendingurinn Dalian Atkinson fyrsti þeldökki leikmaðurinn í sögu félagsins. Þrátt fyrir mikla velgengni innan vallar hurfu þeir félagarnir fljótlega aftur heim til Englands og vegur Real Sociedad fór hnignandi.
Skin og skúrir
[breyta | breyta frumkóða]Leiktíðina 1997-98 hafnaði Real Sociedad í þriðja sæti í La Liga. Þessi árangur tryggði félaginu sæti í Evrópukeppni félagsliða árið eftir þar sem Sociedad lagði Sparta Prag og Dynamo Moskva að velli áður en Atlético Madrid sló liðið út í þriðju umferð keppninnar.
Annað sætið kom í hlut Real Sociedad leiktíðina 2002-03, sem var besti árangur félagsins frá 1988. Real Madrid varð meistari með tveimur stigum meira en baskneska liðið sem Frakkinn Raynald Denoueix stjórnaði. Meistaratitillinn rann úr greipum Sociedad í lokaumferðinni þegar liðið tapaði fyrir Celta de Vigo, 3:2 á útivelli. Vonbrigðin voru sár en tryggðu þó þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu veturinn 2003-04. Þar komst liðið áfram úr erfiðum riðli en féll úr leik í 16-liða úrslitum eftir tap gegn Olympique Lyonnais. Á heimavígstöðvunum lenti félagið í miklum vandræðum og hafnaði í fimmtánda sæti og slapp naumlega við fall.
Vorið 2007 lauk 40 ára samfelldri dvöl Real Sociedad í efstu deild þegar félagið kolféll úr La Liga. Ekki leið þó á löngu uns félagið komst aftur í hóp hinna bestu.
Stjórnarskipti og efnileg ungstirni
[breyta | breyta frumkóða]Vorið 2013 hafnaði Real Sociedad í fjórða sæti í La Liga og tryggði sér þar með þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn í áratug. Fyrst þurfti liðið þó að slá Lyon úr leik í forkeppni. Ekki reyndist árangurinn í riðlakeppninni upp á marga fiska, þar sem Sociedad náði einungis einu stigi.
Í nóvember 2014 var Skotinn David Moyes ráðinn knattspyrnustjóri, sá sjötti slíki frá Bretlandseyjum í sögu félagsins. Honum var sagt upp störfum ári síðar. Næstu misserin einkenndust af örum þjálfaraskiptum.
Heimamaðurinn Imanol Alguacil tók við stjórntaumunum á öðrum degi jóla árið 2018. Undir hans stjórn varð breyting á spilamennsku liðsins, sem sneri baki við þunglamalegum varnarleik en lagði í staðinn áherslu á hraðann sóknarbolta.
Þann 3. apríl 2021 varð Real Sociedad bikarmeistari á ný. Um var að ræða frestaðan úrslitaleik frá fyrra ári vegna Covid-19 faraldursins. Í úrslitum lagði Sociedad granna sína í Athletic Bilbao.
Þekktir leikmenn
[breyta | breyta frumkóða]- Nacho Monreal
- David Silva
- Antoine Griezmann
- Martin Ødegaard
- Xabi Alonso
- Ion Andoni Goikoetxea
- Alexander Isak
- Mikel Arteta
Íslenskir leikmenn
[breyta | breyta frumkóða]- Alfreð Finnbogason 2014-2016
- Orri Steinn Óskarsson 2024-
Titlar
[breyta | breyta frumkóða]- La Liga
- Copa del Rey
- Sigrar (3): 1909, 1986-87, 2019-20
- Annað sæti (5): 1910, 1913, 1928, 1951, 1987-88