Pawel Bartoszek
Pawel Bartoszek | |||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Alþingismaður | |||||||||||||
| |||||||||||||
Borgarfulltrúi í Reykjavík | |||||||||||||
| |||||||||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||||||||
Fæddur | 25. september 1980 Poznań, Póllandi | ||||||||||||
Stjórnmálaflokkur | Viðreisn | ||||||||||||
Maki | Anna Hera Björnsdóttir | ||||||||||||
Börn | 2 | ||||||||||||
Menntun | Stærðfræði | ||||||||||||
Háskóli | Háskóli Íslands | ||||||||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Pawel Bartoszek (fæddur 25. september 1980) er pólsk-íslenskur stærðfræðingur og Alþingismaður fyrir Viðreisn. Hann er jafnframt varaborgarfulltrúi og fyrrum borgarfulltrúi í Reykjavík og var forseti borgarstjórnar Reykjavíkur frá 2019 til 2021. Hann var fulltrúi í Stjórnlagaráði[1] og sat fyrst á Alþingi frá 2016-2017. Hann var um árabil pistlahöfundur í Fréttablaðinu og á vefritinu Deiglunni.[2]
Menntun
[breyta | breyta frumkóða]Sem barn gekk Pawel í Melaskóla, síðar Hagaskóla og kláraði stúdentspróf af eðlisfræðibraut frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2000.[3] Hann lauk svo meistaragráðu í stærðfræði við Háskóla Íslands 2005.[4][5]
Stjórnmál
[breyta | breyta frumkóða]Pawel bauð sig fram til borgarstjórnar í sveitarstjórnarkosningunum 2010 á lista Sjálfstæðisflokksins þar sem hann var í átjánda sæti.[6] Pawel var kosinn á Alþingi fyrir Viðreisn árið 2016[7] en féll út af þingi þegar boðað var til kosninga aðeins ári síðar. Árið 2018 náði Pawel kjöri sem borgarstjórnarfulltrúi Viðreisnar í Reykjavík eftir sveitastjórnarkosningarnar það ár. Hann var forseti borgarstjórnar frá 2019-2021.[8] Pawel náði ekki kjöri í borgarstjórn í kosningunum árið 2022 en varð þá varaborgarfulltrúi.
Pawel var kjörinn á þing fyrir Viðreisn á ný í Alþingiskosningunum 2024.[9]
Verðlaun og viðurkenningar
[breyta | breyta frumkóða]Pawel kom fyrstur í mark í Árbæjarhlaupinu[10] árið 2013, í 10km flokki 17 - 34 ára. Í maí 2014 veitti Samband ungra sjálfstæðismanna honum Frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar fyrir pistlaskrif sín um einstaklingsfrelsi og fyrir að hafa jákvæð áhrif á íslenska stjórnmálaumræðu.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 25 kjörin á stjórnlagaþing sótt 5.7.2011
- ↑ "Deiglan.com - síða höfundar" sótt 21.6.2016
- ↑ Pawel Bartoszek Hleypur Berlínarmaraþon og kennir bráðgerum börnum sótt 5.7.2011
- ↑ Þingfulltrúar: Pawel Bartoszek sótt 5.7.2011
- ↑ Kynning á frambjóðendum: Pawel Bartoszek Geymt 4 janúar 2012 í Wayback Machine sótt 5.7.2011
- ↑ D - listi Sjálfstæðisflokksins Geymt 22 maí 2010 í Wayback Machine Innanríkisráðuneytið, sótt 5.7.2011
- ↑ Pawel Bartoszek Alþingi, sótt 9.8.2017
- ↑ Frettabladid.is, „Pawel tekur við sem forseti borgarstjórnar“ (skoðað 25. febrúar 2021)
- ↑ Kristinn H. Guðnason (2. desember 2024). „Pawel segir liðna kosningabaráttu ekki þá sem hann sé stoltastur af – „Þarna var fylgið botnfrosið í 3 prósentum"“. DV. Sótt 11. desember 2024.
- ↑ http://hlaup.is/displayer.asp?cat_id=954&module_id=220&element_id=24334Stærðfræðingur Geymt 5 mars 2016 í Wayback Machine kemur fyrstur í mark í Árbæjarhlaupinu 2013