Mazarin kardináli
Útlit
Jules Mazarin, áður Giulio Raimondo Mazzarino (14. júlí 1602 – 9. mars 1661) var franskur stjórnmálamaður af ítölskum uppruna. Hann var aðalráðgjafi Frakkakonungs frá 1642 til dauðadags og tók við af læriföður sínum, Richelieu. Hann hélt áfram andstöðu Richelieus við Habsborgara og lagði grunninn að útþenslustefnu Frakka í valdatíð Loðvíks 14.. Hann var samningamaður fyrir hönd Frakklands þegar Vestfalíufriðurinn var undirritaður 1648 þar sem Frakkar fengu héraðið Alsace.