Ljubljana
Ljubljana | |
---|---|
Hnit: 46°03′05″N 14°30′22″A / 46.05139°N 14.50611°A | |
Land | Slóvenía |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Zoran Janković |
Flatarmál | |
• Samtals | 163,8 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 295 m |
Mannfjöldi (2020) | |
• Samtals | 295.504 |
• Þéttleiki | 1.712/km2 |
Tímabelti | UTC 1 (CET) |
• Sumartími | UTC 2 (CEST) |
Póstnúmer | 1000–1211, 1231, 1260, 1261 |
Svæðisnúmer | 01 |
Vefsíða | ljubljana |
Ljubljana er höfuðborg Slóveníu og stærsta borg landsins. Borgin er staðsett í miðju landinu. Í norðri eru Alpafjöllin, Adríahafið í vestri og Pannoniusléttan í austri. Borgin breiðir úr sér yfir um 273 km² svæði, er 298 m yfir sjávarmáli og þar búa um 295 þúsund manns (2020).
Ljubljana er skipt í nokkur hverfi, sem voru áður fyrr sveitarfélög, þau helstu eru Šiška, Bežigrad, Vič, Moste, and Center, þessi hverfi þjóna einnig sem kjördæmi.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Landsvæðið þar sem Ljubljana liggur, sem áður tilheyrði Júgóslavíu, hefur verið byggt frá því á forsögulegum tíma. Miðað er við að borgin hafi verið stofnuð árið 15, þá sem Colonia Iulia Aemona (Emona), nýlenda Rómaveldis. Árið 425 réðust Húnar undir forystu Atla Húnakonungs á borgina og lögðu í rúst.
Elstu rituðu heimildir þar sem minnst er á Ljubljana eru frá árinu 1144 á þýsku (þ. Laibach) og latnesku (l. Luwigana). Árið 1200 fékk Ljubljana kaupstaðarréttindi og varð hluti af Habsborgarveldinu árið 1335 þar til það leið undir lok í kjölfar fyrri heimsstyrjaldarinnar árið 1918. Á því tímabili var Ljubljana höfuðborg Carniola-hertogadæmisins. Þar var biskupsstóll stofnaður 1461. Árið 1511 reið yfir öflugur jarðskjálfti og þá eyðilagðist Ljubljanakastali.