Litunarskófir
Útlit
Litunarskófir | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Hraufuskóf (Parmelia sulcata) á grein.
| ||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Tegundir á Íslandi | ||||||||||||
Hraufuskóf (P. sulcata) Tayl. |
Litunarskófir (fræðiheiti: Parmelia) er ættkvísl fléttna af litskófarætt. Þrjár tegundir litunarskófa finnast á Íslandi,[1] hraufuskóf, litunarskóf og snepaskóf.[2] Íslensku litunarskófirnar eiga það allar sameiginlegt að innihalda efnin atranórin, salazinsýru og consalazinsýru.[2]
Nytjar
[breyta | breyta frumkóða]Litunarskófir er hægt að nota til litunar. Þær gefa frá sér dökkbrúnan, rauðbrúnan eða gulbrúnan lit eftir því hvernig þær eru meðhöndlaðar við litunina.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Hörður Kristinsson & Starri Heiðmarsson (2009). Skrá yfir fléttur á Íslandi. Sótt af vefsvæði Flóru Íslands.
- ↑ 2,0 2,1 Hörður Kristinsson (2016). Íslenskar fléttur. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag. ISBN 978-9979-66-347-8
- ↑ Heiða Lára Eggertsdóttir (2016). Finnum fléttur. (BS greinagerð). Landbúnaðarháskóli Íslands, Umhverfisdeild.