Kíví (fugl)
Útlit
Kíví eru ófleygir fuglar sem eru landlægir á Nýja-Sjálandi og eru af ættkvísl Apteryx og ætt Apterygidae. Þeir eru þjóðartákn landsins og eru íbúar þess stundum kallaðir kíví.
Kíví-fuglar eru af stærð kjúklings. Þeir eru yfirleitt varkárir og á ferli á nóttunni. Lyktarskynið er öflugt og eru þeir einu fuglarnir með nasir á enda goggsins. Goggurinn kemur sér vel við öflun fæðu en helsta fæðan er: Lítil dýr og ormar, fræ og ávextir.
Samband para getur varað í 20 ár og er vanalega eitt egg sem orpið er. Egg Kíví-fugla eru stærstu egg fugla samanborið við líkamsstærð. Kívíum stendur ógn af innfluttum rándýrum.
Tegundir
[breyta | breyta frumkóða]- Apteryx australis (enska: Southern brown kiwi, tokoeka) - Er á suður- og vesturhluta Suðureyju.
- A. haasti: (enska: Great spotted kiwi) - Stærstur kíví-fugla. Stofn er um 20.000. Er á norðurhluta Suðureyju,
- A. owenii: (enska: Little spotted kiwi) - Orðið illa úti vegna rándýra. Stofn um 1350 á Kapiti-eyju við Norðureyju.
- A. rowi: (enska: Okarito kiwi) - Fyrst viðurkennd tegund árið 1994. Smágerðari en aðrir kívíar. Kvenfuglar geta orðið allt að 3 eggjum. Útbreiðsla bundin við lítið svæði á vesturströnd Suðureyju.
- A. mantelli: (enska: North Island brown kiwi) - Algengasta tegundin. Er á Norðureyju og er með fjölbreytt búsvæði. Um 35.000.
-
Apteryx haastii.
-
Apteryx australis.
-
Appteryx mantelli.
-
Apteryx owenii.
-
Apteryx rowii ungi.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Kíví (fugl).
Fyrirmynd greinarinnar var „Kiwi“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. feb. 2017.