Hrökkáll
Hrökkáll | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Hrökkáll í New England Aquarium, Bandaríkjunum.
| ||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||
Gymnotus electricus |
Hrökkáll (fræðiheiti: Electrophorus electricus) er vatnafiskur sem þrátt fyrir nafn sitt telst ekki til álaættar heldur til hnífafiska. Heimkynni hrökkálsins eru í Suður-Ameríku, við Órinókófljót, Gvæjana og mið- og neðri hluta Amasónfljóts. Fiskurinn lifir í vilpum, lækjum og litlum ám í regnskógum.
Hrökkáll verður allt að 2,5 metrar á lengd. Eins og aðrir hnífafiskar andar hann ekki aðeins í gegnum tálknin heldur líka gegnum æðaríka slímhúð munnsins og tekur súrefni úr andrúmslofti. Hann gerir mikið af því að skríða á þurru landi um eyrar í ánum.
Raffæri hans eru ummyndaðir vöðvar og geta framleitt 800 volta spennu. Fiskarnir geta því verið hættulegir dýrum á stærð við hest, sérstaklega á þurru landi, en í vatni er straumurinn fljótur að dreifast.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Reis, R.; Lima, F. (2009). „Electrophorus electricus“. Rauði listi IUCN yfir tegundir í hættu. 2009: e.T167700A6369863. doi:10.2305/IUCN.UK.2009-2.RLTS.T167700A6369863.en. Sótt 11. nóvember 2021.