Gecko
Gecko er frjáls myndsetningarvél fyrir vefsíður. Hún er þróuð af Mozilla Foundation og Mozilla Corporation og þekktasti vafrinn sem notar hana er Firefox. Gecko er skrifuð í C og keyrir á mörgum stýrikerfum. Hún er gefin út með Mozilla Public License-notkunarleyfi.
Upphaf Gecko má rekja til þess að Netscape ákvað að þróa nýja myndsetningarvél fyrir Netscape-vafrann árið 1997. Á þeim tíma var Internet Explorer að leggja undir sig vaframarkaðinn og Netscape þótti vera að dragast aftur úr. Árið eftir var Mozilla-verkefninu hleypt af stokkunum og nýi myndsetningarkóðinn, sem upphaflega hét Raptor, gefinn út með opnu leyfi. Þetta þýddi að endurskrifa þurfti næstu útgáfur Netscape-vafrans. Árið 1999 keypti America Online Netscape og tók við þróun myndsetningarvélarinnar. Árið 2003 sagði fyrirtækið upp þeim forriturum sem enn unnu við Gecko og Mozilla Foundation tók alfarið við þróuninni.