Fara í innihald

Gareth Evans

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gareth Evans
Persónulegar upplýsingar
Fæddur12. maí 1946
SvæðiVestræn heimspeki
TímabilHeimspeki 20. aldar
Skóli/hefðRökgreiningarheimspeki
Helstu ritverk„Can There Be Vague Objects?“, The Varieties of Reference
Helstu kenningar„Can There Be Vague Objects?“, The Varieties of Reference
Helstu viðfangsefnifrumspeki, hugspeki, málspeki, rökfræði

Gareth Evans (12. maí 194610. ágúst 1980) var breskur heimspekingur og prófessor í heimspekivið Oxford University á 8. áratug 20. aldar.

Evans nam heimspeki, stjórnmálafræði og hagfræði við University College í Oxford (19641967). Kennari hans í heimspeki var Peter Strawson. Hann varð fræðimaður við Christ Church, Oxford (1967–1968) og Kennedy Scholar við Harvard University og University of California, Berkeley (1968–1969). Hann lést af völdum lungnakrabbameins árið 1980, þá 34 ára gamall. Ritgerðasafn hans, The Varieties of Reference, kom út að honum látnum.

Á stuttum ferli sínum lagði Evans að mörkum í rökfræði, frumspeki, málspeki og hugspeki. Auk Strawsons voru Michael Dummett og John McDowell mikilvægir áhrifavaldar í hugsun hans.

Líkt og margir breskir heimspekingar vann Evans að því að þróa merkingarfræði fyrir náttúruleg tungumál, undir áhrifum frá bandaríska heimspekingnum Donald Davidson.

Tugir ritgerða voru skrifaðar sem andsvar við einnar blaðsíðu langri grein hans „Can There Be Vague Objects?“ sem birtist í tímaritinu Analysis. Hún er nú talin vera undirstöðuverk í frumspeki.