Fara í innihald

Flauta

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ýmiss konar flautur

Flauta er blásturshljóðfæri sem fundið var upp fyrir 30.000 til 37.000 áru, en sumar gamlar flautur eru allt að 43.000 ára gamlar. Til eru mismunandi gerðir af flautum, til dæmis pikkólóflauta, altflauta og bassaflauta. Allar tegundir flauta eiga það sameiginlegt að ganga fyrir lofti og gefa frá sér samfleytt hljóð.

Að flauta er einnig sagnorð og þýðir að munda varirnar í kríng og blása svo að það kemur skært hljóð (sjá flaut). Að flauta krefst æfingar.

Fornar flautur eins og þær sem notaðar voru á steinöld voru oft gerðar úr beinum dýra sem drápin höfðu verið til matar. Stórt bein var tekið úr dýrinu, mergurinn fjarlægður og göt gerð þá í. Svo var blásið í.

Í upphafi voru flautur oftast gerðar úr beini eða timbri en nú á dögum eru þær yfirleitt gerðar úr silfri eða öðrum málmi. Þverflautan er gerð úr þrem stykkjum og hægt að taka hana í sundur. Á flautunni eru yfirleitt að minnsta kosti 13 göt sem flautarinn getur lokað og breytt þannig tónhæð. Tóninn ræðst af „stellingu“ varanna og því hvaða göt er lokað fyrir. Þó erfitt sé að sjá þá á flautunni er hún keilulaga.

Fyrsta nútímaflautan var fundin upp árið 1832 af Theobald Boehm. Einhvers konar flautuhljóðfæri hafa þó verið þekkt mun lengur og í raun er ómögulegt að segja nákvæmlega hvenær þau koma fram — fornegyptar spiluðu á slík flautur og mörg samfélög fyrir þeirra tíma sem var í gamla daga.

Margar tegundir eru til af flautum, t.d. sú sem spilað er á þannig að hún vísi beint fram kallast blokkflauta og sú sem telst þverlæg — líkt og sú flauta sem allir þekkja flest — kallast þverflauta. En það er flauta sem liggur þvert yfir munnvik flautarans og þegar blásið er kemur flaut.

Að spila á flautu

[breyta | breyta frumkóða]

Hljóðið myndast þegar flautuleikarinn blæs lofti þvert á lítið gat við annan enda hljóðfærisins, þá myndar blásið titring og loftið innan hólksins kemst á hreyfingu og gerir flaut. Hljóðfærir flauta magnar upp hljóðið sem myndast þegar blásið er í flautuna.

  Þessi tónlistargrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.