Dalaköttur
Útlit
Dalaköttur | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Leopardus geoffroyi | ||||||||||||||
Útbreiðsla Leopardus geoffroyi
| ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Oncifelis geoffroyi |
Dalaköttur (fræðiheiti: Leopardus geofforyi) er lítið kattardýr sem lifir í sunnanverðri Suður-Ameríku. Dalaköttur er álíka stór og heimilisköttur, eða 42-66 cm að lengd og 2-6 kg að þyngd. Feldurinn er gulbrúnn og silfurgrár með svörtum blettum.
Dalaköttur kann best við sig í runnagróðri, trjám og á graslendi. Hann veiðir í trjám, á jörðu niðri og í vatni, bæði froska og fiska, engu síður en nagdýr, eðlur, fugla og nýbúann gráhéra. Dalaköttur er nú friðaður en var áður mikið veiddur vegna feldsins, þar til sala parduskattarfelda var bönnuð um 1980. Alþjóðaverslun með parduskattafeldi er bönnuð samkvæmt CITES-samningnum.
Tilvísun
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Pereira, J.; Lucherini, M. & Trigo, T. (2015). „Leopardus geoffroyi“. The IUCN Red List of Threatened Species. IUCN. 2015: e.T15310A50657011. doi:10.2305/IUCN.UK.2015-2.RLTS.T15310A50657011.en. Sótt 14. janúar 2018.