Claudia Sheinbaum
Útlit
Claudia Sheinbaum | |
---|---|
Forseti Mexíkó | |
Núverandi | |
Tók við embætti 1. október 2024 | |
Forveri | Andrés Manuel López Obrador |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 24. júní 1962 Mexíkóborg, Mexíkó |
Stjórnmálaflokkur | Morena |
Maki | Carlos Ímaz Gispert (g. 1987; sk. 2016) Jesús María Tarriba (g. 2023) |
Börn | 2 |
Undirskrift |
Claudia Sheinbaum Pardo (f. 24. júní 1962) er mexíkósk vísinda- og stjórnmálakona og núverandi forseti Mexíkó. Hún tók við embætti þann 1. október 2024. Sheinbaum er meðlimur í vinstriflokknum Morena, flokki forvera síns í forsetaembætti, Andrés Manuel López Obrador. Hún er bæði fyrsta konan og fyrsti Gyðingurinn til að gegna forsetaembætti í Mexíkó.
Sheinbaum var borgarstjóri Mexíkóborgar frá 2018 til 2023.[1] Hún er með doktorsgráðu í orkuverkfræði.[2]
Sheinbaum bauð sig fram í forsetakosningum Mexíkó árið 2024 með stuðningi fráfarandi forsetans Andrés Manuel López Obrador. Hún vann afgerandi sigur í kosningunum þann 3. júní með tæplega sextíu prósentum atkvæðannna.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Sheinbaum fyrsti kvenforsetinn í Mexíkó“. mbl.is. 3. júní 2024. Sótt 3. júní 2024.
- ↑ Hólmfríður Gísladóttir (3. júní 2024). „Fyrsta konan og gyðingurinn til að verða forseti Mexíkó“. Vísir. Sótt 3. júní 2024.
- ↑ Markús Þ. Þórhallsson (3. júní 2024). „Claudia Sheinbaum kjörin fyrsti kvenforsetinn í skugga mikils ofbeldis“. RÚV. Sótt 3. júlí 2024.
Fyrirrennari: Andrés Manuel López Obrador |
|
Eftirmaður: Enn í embætti |
Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.