Fara í innihald

Karakas

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Caracas)
Austur-Karakas.
Fátækrahverfi í borginni.

Karakas (Spænska: Caracas, opinberlega: Santiago de León de Caracas) er höfuðborg Venesúela. Íbúar Karakas eru um 2 milljónir (2017) talsins (3 milljónir á stórborgarsvæðinu). Borgin er stærsta borg landsins.

Borgin liggur í samnefndum dal við fljótið Guaire í norðurhluta landsins milli strandfjallanna Cordillera de la Costa. Byggð er í um 750-1150 metra hæð.

Ein hæsta morðtíðni í heimi er í Karakas.[1][2][3]

Ekki er vitað með vissu hvað liggur að baki nafninu og eru uppi fáeinar tilgátur. Þær tvær helstu eru að í upprunalega óstytta nafninu Santiago de León de Caracas sé Santiago til heiðurs Jakobs eldri (sp. Santiago el Mayor), postula og verndardýrlings Spánar sem mælti fyrir nýlenduverkefnum; León, ættarnafn landstjóra svæðisins á tímabilinu, Ponce de León; og Caracas sem tilvísun í frumbyggjanna sem þar voru fyrir stofnun borgarinnar.

Önnur tilgáta gengur út á að „Caracas“ sé leitt af blómi sem hinir öndverðu íbúar kölluðu caraca og sem fannst í miklum mæli í dalinum þar sem í dag borgin er.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Karl Blöndal (18. september 2011). „Á hálftíma fresti er drepinn maður“. mbl.is. Sótt 17. apríl 2020.
  2. Magnús Halldórsson (18. apríl 2015). „Topp 5: Hættulegustu borgir í heimi“. Kjarninn. Sótt 17. apríl 2020.
  3. „Flest morð í heimi framin í höfuðborg Venesúela“. Morgunblaðið. 3. janúar 2009. Sótt 17. apríl 2020.
  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.