Karakas
Karakas (Spænska: Caracas, opinberlega: Santiago de León de Caracas) er höfuðborg Venesúela. Íbúar Karakas eru um 2 milljónir (2017) talsins (3 milljónir á stórborgarsvæðinu). Borgin er stærsta borg landsins.
Borgin liggur í samnefndum dal við fljótið Guaire í norðurhluta landsins milli strandfjallanna Cordillera de la Costa. Byggð er í um 750-1150 metra hæð.
Ein hæsta morðtíðni í heimi er í Karakas.[1][2][3]
Heiti
[breyta | breyta frumkóða]Ekki er vitað með vissu hvað liggur að baki nafninu og eru uppi fáeinar tilgátur. Þær tvær helstu eru að í upprunalega óstytta nafninu Santiago de León de Caracas sé Santiago til heiðurs Jakobs eldri (sp. Santiago el Mayor), postula og verndardýrlings Spánar sem mælti fyrir nýlenduverkefnum; León, ættarnafn landstjóra svæðisins á tímabilinu, Ponce de León; og Caracas sem tilvísun í frumbyggjanna sem þar voru fyrir stofnun borgarinnar.
Önnur tilgáta gengur út á að „Caracas“ sé leitt af blómi sem hinir öndverðu íbúar kölluðu caraca og sem fannst í miklum mæli í dalinum þar sem í dag borgin er.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Karl Blöndal (18. september 2011). „Á hálftíma fresti er drepinn maður“. mbl.is. Sótt 17. apríl 2020.
- ↑ Magnús Halldórsson (18. apríl 2015). „Topp 5: Hættulegustu borgir í heimi“. Kjarninn. Sótt 17. apríl 2020.
- ↑ „Flest morð í heimi framin í höfuðborg Venesúela“. Morgunblaðið. 3. janúar 2009. Sótt 17. apríl 2020.